10.01.1947
Sameinað þing: 22. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 162 í D-deild Alþingistíðinda. (4874)
22. mál, ullarkaup ríkissjóðs
Skúli Guðmundsson:
Hæstv. fjmrh. sagði í síðustu ræðu sinni, að ef til vill væri búið að borga ullina frá árunum 1943 og 1944. Ég get upplýst, að svo er ekki, og hefur því verið borið við, að nokkuð af ullinni frá því ári væri enn óselt. Því er nú svo varið hjá þeim fyrirtækjum, sem taka þessa vöru í umboðssölu, að þau halda hverju ári fyrir sig í reikningum, og rugla ekki saman framleiðslu margra ára. Ég tel þess vegna, að það sé ekki rétt, þótt nokkur hluti af ullinni frá 1945, fyrsti flokkur, sé afgreiddur, að verðið fyrir þá ull sé notað til þess að borga ull frá fyrri árum.
Það má því gera ráð fyrir því, að meðan ullin frá fyrri árum er ekki seld og engar ráðstafanir gerðar, verði framleiðendur að bíða eftir að fá verðið að fullu greitt.