16.01.1947
Sameinað þing: 23. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 215 í D-deild Alþingistíðinda. (4981)
274. mál, millilandasiglingar strandferðaskipa
Gísli Jónsson:
Ég vil í sambandi við þetta mál leyfa mér að benda á, að sett var mþn. til þess að gera till. um fyrirkomulag strandsiglinganna, og varð hún sammála um till. um, að byggt skyldi eitt skip líkt og Esja, sem nú er í byggingu, og 4 strandferðabátar. Samkv. upplýsingum, sem fyrir lágu hjá forstjóra Skipaútgerðar ríkisins, taldi hann þetta vera þann minnsta skipakost, sem þyrfti til þess að starfrækja strandsiglingar kringum land, til þess að fá bæði í senn hæfilegar strandferðir fyrir fólk til afnota, bæði til fólksflutninga og vöruflutninga, og sérstaklega til þess að geta haft fjárhagsafkomu sæmilega. Það var fallizt á að gera frekari tilraunir með þetta, að fá tvö skip svipuð Esju og síðan tvo strandferðabáta í trausti þess, að mætti þá til að byrja með skipuleggja þessar ferðir svo, að ná mætti góðum árangri, og þess vegna er það, að Alþ. hefur fallizt á að heimila um ? millj. kr. lán til þess að standa undir þessum kostnaði. Kom það þá aldrei til greina í þeirri n, að nota þennan skipakost til Englandsferða né Miðjarðarhafsferða, og forstjóri skipaútgerðarinnar lagði áherzlu á það, að þessum skipakosti yrði haldið innanlands, við strandferðir. Nú greindi mig, sem átti sæti í þessari n., mjög á við forstjóra Skipaútgerðar ríkisins, sem var form. n., um það, hvort ná mætti með þessu sæmilegri fjárhagsafkomu, og liggja fyrir um þetta skýr gögn, áætlun mín í málinu annars vegar og áætlun hans hins vegar. Meiri hl. n. féllst á hans áætlun, og taldi ég þá mega láta reynsluna skera úr um það. En mér þætti mjög miður, ef það yrði til þess að raska áætlun og ábyrgð forstjóra skipaútgerðarinnar, að Alþ. færi nú að grípa inn í ráðstafanir hans um það að setja skipin til allt annarra starfa en hann hefur gert ráð fyrir. Ég hef haft fregnir af því, að þær ferðir, sem Esja hefur farið á síðasta ári til Kaupmannahafnar, og mun hún hafa verið fullhlaðin af farþegum, hafi síður en svo gefið hagnað, að þar sé um að ræða meira tap en á sjálfum strandsiglingunum, svo að það getur varla verið um að ræða beina tekjuöflun hér með þessari till.
Ég vildi láta þetta koma fram, áður en till. fer í nefnd.