24.03.1947
Sameinað þing: 39. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 468 í B-deild Alþingistíðinda. (546)

12. mál, fjárlög 1947

Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Herra forseti. Í lögum nr. 42 frá 1946 er gert ráð fyrir því að veita bæjum lán til þess að útrýma heilsuspillandi íbúðum. Það gæti orðið um vaxtamismun að ræða, en það kemur ekki til greina, að hann verði 2 milljónir króna. Hins vegar gæti ef til vill orðið um einhvern vaxtamismun að ræða, og er rétt að athuga það nánar í n., en gegn þessu greiði ég atkv. og segi nei.