21.05.1947
Neðri deild: 136. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 704 í B-deild Alþingistíðinda. (722)

217. mál, innkaupastofnun ríkisins

Forseti (GÞ):

Í sambandi við aths. hv. 6. þm. Reykv. vil ég taka það fram, að þm., sem ekki eru flm. máls. hafa ekki rétt til aths., nema þeir ræði um þingsköp eða séu að bera af sér sakir. Hitt er svo annað mál, að forsetar leyfa þetta venjulega, en það er ekki skilyrðislaus réttur þm.