13.05.1947
Neðri deild: 127. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 894 í B-deild Alþingistíðinda. (798)

195. mál, fjárhagsráð, innflutningsverzlun og verðlagseftirlit

Jörundur Brynjólfsson:

Um afgreiðslu þessa máls er samkomulag milli stjórnarflokkanna. Það samrýmist því ekki þeim samningi að lögfesta þessa brtt. Framkvæmd málsins, sem brtt. er um, verður í höndum fjárhagsráðs, og í trausti þess, að þar verði gætt réttinda samvinnumanna, segi ég nei.