10.10.1946
Sameinað þing: 1. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 8 í B-deild Alþingistíðinda. (8)

Forseti Íslands setur þingið

Eysteinn Jónsson:

Það vantar tvo framsóknarflokksmenn á fundinn. Annar þeirra er nú á leiðinni hingað, en ekki hefur náðst til hins enn þá. Ég geri ekki ráð fyrir, að það hafi nein áhrif á forsetakjörið, eins og allt mun vera í pottinn búið, og er bezt að láta auðnu ráða um það. — [Í sama bili gengu báðir hinir umræddu þm. inn í þingsalinn.]