22.05.1947
Neðri deild: 139. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 975 í B-deild Alþingistíðinda. (915)
27. mál, eftirlit með skipum
Frsm. (Finnur Jónsson) :
Herra forseti. Þetta frv. var upphaflega undirbúið af mþn. og lagt hér fram árið 1946. Í vetur var það lagt fyrir Ed. sem stjfrv. og hefur fengið þar athuganir og gerðar á því breyt. Sjútvn. þessarar d. hefur athugað þær breyt., og telur n. að ein breytingin sé ekki til bóta, og þrátt fyrir nál. á þskj. 947 mun hún leggja fram brtt. við 3. umr. Sú brtt. er um það, að í 8. gr. bætist. að skipaskoðunarstjóri geti verið eitt af þrennu, skipaverkfræðingur, vélfræðingur og siglingafræðingur. Hv. 5. þm. Reykv. hafði gert fyrirvara, en ég hygg. að hans fyrirvara sé fullnægt með þessari brtt.