07.02.1947
Efri deild: 66. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 981 í B-deild Alþingistíðinda. (941)

35. mál, matsveina- og veitingaþjónaskóli

Frsm. (Gísli Jónsson) :

Herra forseti. Sjútvn. hefur komið sér saman um brtt. við 6. gr. frv., að í stað orðanna „veitingaþjónaiðn“ komi: framreiðslumannaiðn. og er það til samræmingar við iðnaðarlöggjöfina. Brtt. þessi er skrifleg, og leyfi ég mér að afhenda hæstv. forseta hana.