18.12.1946
Efri deild: 38. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í B-deild Alþingistíðinda. (95)

45. mál, menntaskólar

Frsm. (Ásmundur Sigurðsson):

Herra forseti. — Ég vildi aðeins segja nokkur orð út af því, sem hv. þm. Barð. sagði. Ég veit, að hv. þm. Barð. skilur það, að þegar lýst er yfir af ráðh. einhverju í þessu efni, þá er það tekið gilt. Og meira að segja honum er það einnig ljóst. að það er tekið gilt, ef frsm. máls gefur yfirlýsingu af hálfu n. um það, hvernig skilja beri eitthvert atriði málsins.