21.05.1947
Sameinað þing: 56. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 989 í B-deild Alþingistíðinda. (969)
35. mál, matsveina- og veitingaþjónaskóli
Frsm. Ed-nefndar (Gísli Jónsson) :
Ég vil í tilefni af ræðu hæstv. ráðh. og hv. 5. þm. Reykv. leyfa mér, þar sem þeir hafa fullyrt, að þetta mál sé undirbúið í samvinnu við Matsveina- og veitingaþjónafélag Íslands, að lesa kafla úr bréfi frá félaginu til sjútvn. Nd. 21. nóv. 1946. Það hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta: „Við erum alveg á móti því, að Farmanna- og fiskimannasamband Íslands hafi nokkur afskipti af þessum skóla, þar sem við teljum þennan skóla eiga að koma í stað iðnskóla fyrir þá, sem vilja læra þessar iðngreinar.“ Svo leyfa þeir sér að segja, að fullt samkomulag sé við þessa aðila. M. ö. o. það er togstreita um það. að veitingaþjónar og félag þeirra vill fá skóla fyrir sig sem iðnskóla. Nemendur hjá meisturum fá laun fyrir að nema í fjögur ár í stað þess að læra í skóla. Hvernig hefur hæstv. ráðh. hugsað sér að koma þessu fyrir? Ætlast hann til þess; að nemendur, sem ríkið kostar þennan skóla fyrir. haldi áfram að taka laun hjá meisturum? Ég er ekki viss um, að þetta sé eins djúpt hugsað og fram kom í ræðu hans. Það er verið að rjúfa iðnlöggjöfina með þessu. Hæstv. ráðh. er hér að beita sér fyrir sams konar breyt. og hann hefur áður beitt sér á móti, m. a. sveitaiðnskólunum. (Samgmrh.: Fjarri því.) Nei, hann notar bara rökin svona. þegar þau styðja hans mál, þó að það sé þvert á móti því, hvernig hann hefur notað sams konar rök daginn áður, eftir því sem honum býður við að horfa.
Ég vil í þessu sambandi benda á, að ekkert er um það sagt, hvaða rétt þessir menn eigi að hafa á öðrum sviðum. Hæstv. ráðh. vill hér blanda saman námi við sjómannaskólann fyrir matsveina á fiskiskipum og námi fyrir matsveina á hótelum í landi, sem eiga að taka nám eftir allt öðrum l. Til þess ætlar hann að verja hundruðum þúsunda króna, eins og þessi skóli kemur til með að kosta, ef ekki er spyrnt fótum við.
Ég hygg, að ef hæstv. ráðh. vill tryggja málið hér, þá væri eðlilegast fyrir hann að fá málið tekið nú af dagskrá og reyna að bæta fyrir það, sem hann hefur alveg vanrækt, að fá samkomulag um það milli d. Hann hefur ekki fengizt til að ræða málið við Ed. Hann ætti að reyna að sjá til, hvort ekki er hægt að koma í veg fyrir, að frv. falli, bjarga því. sem bjarga þarf. Verði þessi brtt. samþ., þá hleypur hann þá áhættu, að málið nái ekki fram að ganga, því a.ð þótt till. þurfi ekki nema einfaldan meiri hl., þá þarf málið sjálft 2/3. Hann hefur ekkert öryggi fyrir, að þetta góða mál verði ekki drepið fyrir honum. Ég vil því mjög mælast til þess, að hann fallist á, að málið sé nú tekið af dagskrá og reynt að fá samkomulag um málið milli deildanna.