21.05.1947
Sameinað þing: 56. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 990 í B-deild Alþingistíðinda. (970)

35. mál, matsveina- og veitingaþjónaskóli

Sigurjón Á. Ólafsson:

Til þess að spara umr. vil ég eindregið taka undir það, sem form. sjútvn. Ed. lagði til, að málið sé nú tekið af dagskrá. Það er ekki eins einfalt og hæstv. ráðh. vill vera láta. Það virðist, að sá misskilningur hafi komizt inn í málið, að þar sé farið eftir till. manna, sem hafa ekki hugsað málið svo vel sem vera ber.