18.03.1948
Efri deild: 81. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 857 í B-deild Alþingistíðinda. (1007)
188. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga
Frsm. meiri hl,. (Þorsteinn Þorsteinsson):
Herra forseti. Fjhn. hefur haft mál þetta til athugunar á fundum sínum, en ekki hefur n. öll getað orðið sammála um málið.
Eins og hæstv. fjmrh. benti á við 1. umr. málsins, var prentvilla í frv. Hana leiðréttir n. nú með brtt. á þskj. 539. Fjórir nm., allir nema hv. 4. landsk., hafa lagt til, að frv. yrði samþ. með þessari leiðréttingu, en einn af okkur fjórum hefur áskilið sér rétt til að hafa óbundnar hendur um brtt., sem fram kunna að koma við frv.
Ég hygg, að n. hafi verið sammála um, að það mundi verða nokkuð féfrekt, ef veitt væri ótakmarkað fé til að byggja hús, og þar þyrfti á að ósi stemma, eins og fjárhagur ríkisins er nú. Má segja, að það sé nokkuð erfitt fyrir suma, sem hafa gert sér von um að fá byggingarleyfi, en ef allir fá allt, sem þeir óska og vilja, þá er ekki heldur hörgull á neinu. En þó að stöðvaður sé í bili sá fjárstraumur, þá hygg ég, að ekki horfi til stórvandræða.
Um 2. lið á frv. varð alveg samkomulag. Ég held, að allir hafi verið sammála um að leggja það til, enda er það ekki nema eðlileg hækkun, þar sem komin er hækkun á allar greiðslur til ríkissjóðs.
Þriðji liðurinn er sá, sem marga tekur sárast. En ég hygg þó, að eins og nú standa sakir og jafnvel á næsta ári þá muni ekki koma kyrkingur í nýbyggingar, jafnvel þó að framlagið sé lækkað um þessa einu milljón, en hvað síðar kann að verða, skal ég engu spá um. Ég hygg, að ekki sé framkvæmt meira í þeim efnum en svo, að ekki sé gerð nein skemmd, þó að þetta sé dregið úr á þessu og næsta ári.
N. hefur ekki getað borið sig saman um þær brtt., sem fyrir liggja frá hæstv. ráðh., og hef ég því ekkert umboð til að tala um þær fyrir n. hönd, en ég geri ráð fyrir, að hæstv. fjmrh. muni skýra það mál hér við þessa umr.