18.03.1948
Efri deild: 81. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 864 í B-deild Alþingistíðinda. (1014)

188. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga

Forseti (BSt):

Ég vildi tilkynna hv. deild tvennt. Í fyrsta lagi það, að nauðsynlegt er tímans vegna að halda annan fund með allmörgum málum á dagskrá, og er því nauðsynlegt að hraða þessum fundi. Í öðru lagi vil ég tilkynna það, að eins og venja er til á kvöldfundum, bíða manna góðgerðir í anddyrinu nú á eftir.