22.03.1948
Neðri deild: 80. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 905 í B-deild Alþingistíðinda. (1044)

188. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga

Frsm. meiri hl. (Ásgeir Ásgeirsson). Herra forseti. Fjhn. hefur klofnað um afgreiðslu málsins. Meiri hl. hennar, 4 menn, leggur til, að frv. verði samþ. Minni hl. n. leggur til, að það verði fellt. Þó hafa nm. innan meiri hl. áskilið sér rétt til þess að greiða atkv. með brtt.