22.03.1948
Neðri deild: 80. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 905 í B-deild Alþingistíðinda. (1045)
188. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga
Frsm. minni hl. (Einar Olgeirsson):
Herra i Fjhn. hefur ekki orðið sammála um afgreiðslu þessa frv., og hef ég, minni hl. fjhn., lagt til, að frv. verði fellt. Ástæða mín til þess er sú, að með þessu frv., ef að l. yrði, er verið að rýra þann rétt. sem landsmenn hafa fengið á undanförnum árum með gagnlegum lagasetningum. Þær yfirlýsingar, sem hæstv. fjmrh. gaf við 1. umr. málsins um frestun á 1 millj. kr. framlagi til nýbýlasjóðs, byggist ekki að neinu leyti á samkomulagi við fulltrúa landbúnaðarins. Um þetta hefur ekkert samkomulag verið gert við nýbýlastjórn. Við 1. umr. málsins komu fram margar raddir, sem mótmæltu þessu, og finnst mörgum að hér sé stefnt í óefni, og þó sérstaklega með ákvæðum 1. gr. frv., þar sem lánveitingar eru stöðvaðar til útrýmingar heilsuspillandi húsnæðis. Gagnrýni, og hún allhörð, hefur komið fram á allar gr. frv. þessa. Vegna þessarar andstöðu þætti mér eðlilegt, að umr. um málið færi fram, er fleiri hv. þdm. væru viðstaddir umr., og atkvgr. fari ekki fram nú, ef umr. lýkur, en forseti fresti henni til morguns, svo að allur þorri hv. þdm. geti tekið þátt í atkvgr. Hvað við kemur þeim brtt., sem komið hafa fram, þá bæta þær hvergi nærri úr þeim vandræðum. sem af hljótast, þó að þær verði samþ., og bezta afgreiðsla málsins væri, að frv. yrði fellt. Hins vegar hef ég ekki treyst mér að bera fram gagngerar brtt. varðandi skylduframlag til þeirra sjóða, sem hér um ræðir. Það hefur ekki verið unnt að semja brtt. á þeim stutta tíma, sem hefur verið á milli umr. Ég vildi láta hæstv. ráðh. athuga þetta mál nánar, og að hann gerði ráðstafanir til raunhæfari aðgerða, en hæstv. ríkisstj. virðist leggja allt kapp á að afgr. þetta mál fyrir þinglok. Hæstv. fjmrh. mætti illa hér í þd. í gær, og er ekki heldur hér nú, en það er til of mikils mælzt, að mál sem þetta sé afgr. á næstu fundum, því að ekki hefur reynzt nægur tími til þess að útbúa þskj. né útbýta þeim, og sjálfur hæstv. fjmrh. gefur sér ekki tíma til þess að mæta hér í d. Ég hef spurt þá þm., sem sæti eiga í nýbýlastjórn, hvort ákvæði 3. gr. l. væru sett inn með þeirra vilja. Hv. þm. A-Húnv. hefur yfirlýst, að svo sé ekki, og hafa þm. A-Húnv. og hv. 1. þm. Skagf. greitt atkv, á móti því. Hafa báðir þessir þm. sýnt og sannað, að þeir eru þessu andvígir. Ég spurði einnig í dag, hvort Framsfl. hefði samþ. þessa skerðingu, sem felst í frv., en það gengur erfiðlega að feðra krógann, og er það heldur óviðkunnanlegt. Það væri því mjög heppilegt, að tími ynnist til að afhuga þetta mál nánar. Það er lítils virði að halda uppi umr. um þetta mál hér á Alþ., ef hæstv. ráðh. treysta sér ekki að gefa þær yfirlýsingar, sem þm. óska eftir.