23.03.1948
Neðri deild: 81. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 912 í B-deild Alþingistíðinda. (1060)

188. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga

Finnur Jónsson:

Með tilvísun til upplýsinga hæstv. menntmrh. um, að slík brtt., ef samþ. yrði, mundi geta stofnað málinu í hættu og þannig orðið þess valdandi, að margra millj. tjón verði fyrir útgerðina á næstu vertíð, og með tilvísun til þessara miklu framkvæmda. sem fyrirhugaðar eru hér um auknar verksmiðjur í landinu, tel ég ekki ástæðu til að greiða atkv. með þessari till. og segi nei.