23.03.1948
Neðri deild: 81. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 913 í B-deild Alþingistíðinda. (1064)
188. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga
Sigfús Sigurhjartarson:
Mér skilst, að menn beri því við, að þeir, sem greiði atkv. með þessari till., setji þetta mál í voða. Þetta finnst mér alveg gagnslausar mótbárur, því að í dag er fundur og á morgun er nægur tími til að afgr. málið. Hins vegar vil ég benda á það, að ríkisstj. hefur þegar sett heimild til þess að taka lán erlendis til að greiða fyrir þeim framkvæmdum, sem hér er um að ræða, og augljóst er, að ríkisstj. getur selt hvaða skilyrði sem henni sýnist fyrir þessum fjárhagslegu framkvæmdum fyrir þann félagsskap, sem hér er um að ræða, og þess vegna segi ég já.