23.03.1948
Neðri deild: 83. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 921 í B-deild Alþingistíðinda. (1096)

188. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga

Einar Olgeirsson:

Mér finnst eftir efni till., að till. á þskj. 668 og 663 eigi að berast upp á undan till. á þskj. 671. Allar eru þessar till. viðbætur, en þær tvær fyrst nefndu eru skilyrði aftan við tölulið og ganga lengra en till. á þskj. 671. Eftir reglum hæstv. forseta á því að bera þær upp á undan.