18.12.1947
Efri deild: 38. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 967 í B-deild Alþingistíðinda. (1281)

114. mál, skemmtanaskattur

Frsm. (Pétur Magnússon):

Frv. þetta er shlj. l., sem gilda fyrir árið 1947, og hafa sams konar ákvæði verið í l. mörg undanfarin ár. Samkv. frv. skal stj. heimilað að innheimta skemmtanaskatt árið 1948 af kvikmyndasýningum með 200% álagi og af öðrum skemmtunum með 20% álagi. — Frv. um þetta var flutt af fjhn. Nd., og fjhn. þessarar d. hefur athugað frv. og leggur til, að það verði samþ. Það eru vitanlega allar sömu ástæður og áður til þess að ná sem mestu inn af skemmtanaskatti.