08.12.1947
Neðri deild: 28. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 35 í B-deild Alþingistíðinda. (131)

2. mál, gagnfræðanám

Frsm. (Páll Þorsteinsson):

Herra forseti. —Um þetta mál gildir í raun og veru alveg það sama og um það mál, sem nú var síðast hér til umr., sem var frv. um breyt. á l. um menntaskóla. Sú efnisbreyt., sem farið er hér fram á að gera gagnvart skipun kennara við gagnfræðaskóla, er alveg sama eðlis og sú, sem ég var að skýra frá viðvíkjandi menntaskólum. — Ég hef ekkert sérstakt að taka fram þar fram yfir viðkomandi þessu máli annað en það, að menntmn. er sammála um að mæla með samþykkt þessa frv. eins og það liggur hér fyrir.