09.02.1948
Efri deild: 55. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 988 í B-deild Alþingistíðinda. (1347)
113. mál, stýrimannsskírteini og vélstjóraskírteini
Frsm. (Björn Kristjánsson):
Herra forseti. Þetta frv. var lagt fram í Nd. og samþ. þar ágreiningslaust. Efni frv. er það að veita samgmrh. heimild til að veita tveim mönnum réttindi, öðrum stýrimannsréttindi og hinum vélstjóraréttindi. Þeir hafa báðir lokið prófum við danska skóla, en samkv. íslenzkum lögum verða þeir að hafa lokið prófi við íslenzkan skóla til þess að fá full réttindi. Annar þessara manna, Páll Ragnarsson, sem farið er fram á að veita skipstjóraréttindi, fór til Danmerkur og tók þar stýrimannspróf með góðri einkunn og hlaut þar skipstjórnarréttindi. Árið 1942 útskrifaðist hann frá sjóliðsforingjaskólanum og starfaði eftir það fyrir sjómælingastofnunina dönsku og enn fremur sem skipstjóri. Hann kom heim árið 1945 og vann að sjómælingum og kennslu. Hann hefur ágæt próf og góða menntun, og er n. einhuga um, að hann fái réttindin.
Hinn maðurinn, Jóhann Rist, útskrifaðist úr vélstjóraskólanum í Kaupmannahöfn 1939 og hefur síðan siglt mikið sem vélstjóri. N. leitaði álits skólastjóra vélstjóraskólans hér, og leggur hann til, að honum séu veitt vélstjóraréttindi hér. Hann telur hann hafa lokið sams konar prófi og krafizt er hér, nema hvað hann hafi ekki tekið próf í rafmagnsfræði, en það telur hann, að hann geti tekið, hvenær sem er, og að því loknu sé sjálfsagt að veita honum full réttindi. Að fengnum þessum upplýsingum leggur n. til, að maður þessi fái þau réttindi, sem um getur í frv., og leggur því til að frv. verði í heild samþ. óbreytt.