30.10.1947
Efri deild: 11. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 996 í B-deild Alþingistíðinda. (1354)

47. mál, togarasmíði í tilraunaskyni

Flm. (Gísli Jónsson):

Það eru aðeins örfá orð. — Ég vil þakka ráðh. fyrir undirtektir hans í málinn. Sjútvn. mun að sjálfsögðu senda þetta mál til umsagnar öllum þeim aðilum, sem hún telur, að geti gefið upplýsingar um það.

Ég fyrir mitt leyti vil fallast á það, sem ráðh. stingur upp á, að í staðinn fyrir fyrirmæli komi heimild, og skal þess utan sem form. n. hafa fulla samvinnu við hann um afgreiðslu málsins, áður en það kemur frá n. aftur.