18.12.1947
Neðri deild: 38. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 36 í B-deild Alþingistíðinda. (144)

122. mál, ráðstafanir í sambandi við skilnað Íslands og Danmerkur

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. — Ég vildi aðeins spyrja, af því að ég var ekki á fundi, hvort þetta frv. hafi ekki verið sent til n. Mér er kunnugt um, að utanrmn. hefur ekki fjallað um það. En ég kynni betur við, að t.d. sjútvn. fengi að líta á það. (Forseti: Þetta mál er nú til 3. umr.) Það er þá hægt að athuga það í hv. Ed.