18.02.1948
Neðri deild: 59. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1034 í B-deild Alþingistíðinda. (1445)

162. mál, gjald af innlendum tollvörutegundum

Frsm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Herra forseti. Fjhn. flytur þetta frv. fyrir fjmrh., og eins og það ber með sér, er það þess efnis, að framlengd verði breyt. sú, sem gerð var á gjaldi af innlendum tollvörutegundum, eða sú hækkun, sem gerð var, látin haldast. Ástæðurnar fyrir þessu þarf ekki að skýra því að þm. er kunnugt um þörf ríkissjóðs fyrir þær tekjur, sem af þessu fást. Ég sé því ekki ástæðu til að fara um þetta fleiri orðum.