09.03.1948
Neðri deild: 71. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1063 í B-deild Alþingistíðinda. (1507)

45. mál, búfjárrækt

Frsm. (Jón Sigurðsson):

Herra forseti. Mál þetta hefur verið í Ed. og tekið þar nokkrum breyt., en allar eru þær frekar smávægilegar og ekki teljandi efnisbreyt. Landbn. þessarar d. hefur ekki haft tækifæri til þess að taka þetta sérstaklega fyrir, en af þeim viðræðum, sem ég hef átt við einstaka nm., hygg ég, að ég megi segja, að n. geti eins og stendur eftir atvíkum fallizt á þær breyt., sem gerðar hafa verið á frv. í Ed., og leggur til, að frv. verði samþ. eins og það kom frá Ed.