26.01.1948
Efri deild: 48. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1171 í B-deild Alþingistíðinda. (1824)

79. mál, kaupréttur á jörðum

Ásmundur Sigurðsson:

Herra forseti. Ég ætla ekki að segja mikið um frv. og brtt. við það. Hv. þm. N-M. hefur prýðilega gert grein fyrir sjónarmiði okkar þremenninganna, sem felst í þessari brtt., en ég vil benda á, að í 8. gr. frv. segir: „Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1948.“ Það var búizt við, að þau yrðu tilbúin fyrir þann tíma. Nú er þessi tími liðinn, og þarf því að breyta þessu. Ég leyfi mér því að leggja hér fram skrifl. brtt., þar sem segir: „Lög þessi öðlast þegar gildi.“