16.12.1947
Neðri deild: 34. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 113 í B-deild Alþingistíðinda. (183)

116. mál, dýrtíðarráðstafanir

Samgmrh. (Emil Jónsson):

Ég sé, að hæstv. forsrh. er ekki viðstaddur, en ég held, að ég megi fyrir hans hönd bera fram þá ósk, að málinu verði fram haldið nú. Það er liðið mjög að því, að þinghlé verði gert, því að það mun verða eftir nokkra daga. Töf á málinu gæti því orðið til að það yrði ekki afgr. nú. Ég vil því eindregið óska þess af hæstv. forseta, að málinu verði flýtt, eins og mögulegt er.