16.12.1947
Neðri deild: 34. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 115 í B-deild Alþingistíðinda. (187)

116. mál, dýrtíðarráðstafanir

Forseti (BG):

Ég vil beina þeirri fyrirspurn til hv. 2. þm. Reykv., hvort hann mundi sætta sig við, að ákveðið yrði fundarhlé þar til kl. 5 (EOI: Ég get ekki verið búinn fyrir kl. 5.) Hér rekast á ákveðnar óskir. Kemur þá til úrskurðar þd. í sjálfri atkvgr., því að það þarf afbrigða við, og kemur þá fram vilji d. í þessu atriði. Er þá tekið fyrir 4. mál á dagskrá, frv. til l. um dýrtíðarráðstafanir, 116. mál Nd., þskj. 190, n. 198.

Of skammt er liðið frá 1. umr. og útbýtingu nál., og verður nú leitað afbrigða.