23.03.1948
Neðri deild: 82. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1220 í B-deild Alþingistíðinda. (2001)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að bera fram fyrirspurn til hæstv. forsrh. varðandi starf þingfararkaupsnefndar, sem haft hefur með kaup þingmanna að gera. Nefnd þessi átti fyrir löngu að birta álit sitt. Og ég vildi gjarnan fá að vita, hvernig þessi mál standa, áður en þingi er slitíð. Ég hef búizt við þessu nú undanfarið, og þingfararkaupsnefnd hefur tjáð mér, að hæstv. forsrh. væri kunnugt, hvernig mál þessi stæðu nú. Og væri nú bezt, að hæstv. forsrh. upplýsti, hvernig þessum málum er nú komið.