10.03.1948
Sameinað þing: 51. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1226 í B-deild Alþingistíðinda. (2017)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Út af fsp. hv. þm. S-Þ. í sambandi við afgreiðslu þáltill. um markaðsleit í Bandaríkjunum skal ég upplýsa, að n. hafði þetta mál til umr. nú síðast í dag á fundi og ákvað að reyna að ganga frá málinu á næsta fundi. Hún þurfti að leita umsagnar ýmissa aðila um þetta mál, en vegna margvíslegra anna í sambandi við afgreiðslu fjárl., hefur ekki verið unnt að afgreiða þessa till. fyrr. Vænti ég, að n. geti skilað þessu nál. bráðlega.