17.12.1947
Sameinað þing: 31. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1231 í B-deild Alþingistíðinda. (2041)
Orlofsfé þingmanna
Hermann Guðmundsson:
Ég skal ekki vera langorður. En út af því, sem hér hefur verið sagt, vil ég taka það fram, að ég mæli alls ekki á móti því, að það séu fleiri hv. þm. en við tveir, sem rétt eiga á orlofsfé. Ég sem starfandi verkamaður hef framvísað minni orlofsbók hér og krafizt míns orlofsfjár. Það mun ekki standa á mér að endurgreiða kaupið, ef það reynist rangt, sem gert hefur verið. Ég tel rétt að athuga þetta mál betur, svo að jafnrétti megi ríkja. Það var ekki ástæðan hjá okkur með því að krefjast orlofsfjár, að við vildum fá meira kaup en aðrir þingmenn, heldur réð gerðum okkar aðeins sú venja, sem við höfum átt við að búa í vinnu okkar.