20.12.1947
Sameinað þing: 33. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1239 í B-deild Alþingistíðinda. (2077)

Þingfrestun

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér — og ég veit, að ég tala fyrir alla þm. að óska hæstv. forseta gleðilegra jóla og nýárs, góðrar heimferðar og hingaðkomu og leyfi mér að biðja hv. þm. að taka undir þessar kveðjur mínar með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]