20.01.1948
Sameinað þing: 34. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1239 í B-deild Alþingistíðinda. (2079)
Setning þings af nýju
Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):
Ég vil leyfa mér að lesa upp forsetabréf, er hljóðar svo:
„Forseti Íslands gerir kunnugt:
Ég hef ákveðið samkvæmt tillögu forsætisráðherra að Alþingi, 67. löggjafarþing, skuli koma saman til framhaldsfunda þriðjudaginn 20. janúar 1948, kl. 13.30.
Ritað í Reykjavík 9. jan. 1948.
Sveinn Björnsson
(L. S.)
Stefán Jóh. Stefánsson.“