24.03.1948
Efri deild: 89. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1241 í B-deild Alþingistíðinda. (2084)

Starfslok deilda

Þorsteinn Þorsteinsson:

Ég vil í nafni deildarinnar þakka hæstv. forseta fyrir hans ágætu og röggsamlegu og réttlátu fundarstjórn hér í hv. d. Og vil ég óska honum alls góðs, góðrar heimkomu og góðrar framtíðar, og þakka honum fyrir hið ágæta samstarf, sem hefur verið milli hans og hv. þdm. — [Deildarmenn risu allir úr sætum.]