23.03.1948
Neðri deild: 83. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1241 í B-deild Alþingistíðinda. (2086)

Starfslok deilda

forseti (BG):

Dagskrá þessa fundar er þrotin, en enn er ekki hægt að segja með vissu, hvort störfum þingdeildarinnar er lokið. Þar sem það þó þykir ólíklegt, að frekari fundir verði, vil ég færa hv. þingdeildarmönnum beztu þakkir fyrir ágætt samstarf og þakka þeim þá þolinmæði, sem þeir hafa sýnt mér sem forseta deildarinnar. Ég vil óska þingmönnum góðrar ferðar og góðrar heimkomu og giftu og gengis í framtíðinni.