28.10.1947
Neðri deild: 9. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1 í C-deild Alþingistíðinda. (2095)

20. mál, fjárhagsráð, innflutningsverslun og verðlagseftirlit

Forseti (BG):

Útvarpsumræðum þessum verður hagað þannig, að hver flokkur fær 45 mín. til umráða, 25 mín. í fyrri umferð, en 20 mín. í þeirri síðari. Röð flokkanna við báðar umferðir verður þessi: Sameiningarflokkur alþýðu sósíalistafl., Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur. Fyrstur tekur til máls hv. 6. þm. Reykv. Sigfús Sigurhjartarson, og talar af hálfu Sameiningarflokks alþýðu.