02.12.1947
Neðri deild: 25. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 46 í C-deild Alþingistíðinda. (2114)

20. mál, fjárhagsráð, innflutningsverslun og verðlagseftirlit

Sigfús Sigurhjartarson:

Herra forseti. Þann 13. okt. s.l. var útbýtt hér í þessari hv. d. frv. til l. um breyt. á l. um fjárhagsráð, innflutningsverzlun og verðlagseftirlit, og þann 28. s. m. er svo málið tekið fyrir í útvarpsumr., og 30. okt. er málinu vísað til hv. fjhn. Þar sem nú er alllangt liðið síðan málinu var vísað til n., vildi ég óska þess að fá upplýsingar um meðferð málsins í hv. n. og óska þess, að hún gefi út nál. og afgreiði málið til 2. umr.