15.12.1947
Neðri deild: 32. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 46 í C-deild Alþingistíðinda. (2116)

20. mál, fjárhagsráð, innflutningsverslun og verðlagseftirlit

Sigfús Sigurhjartarson:

Það var 2. þessa mánaðar, að ég spurðist fyrir í hv. d., hvað liði nál. um 20. mál d., sem er frv. til l. um breyt. á l. um fjárhagsráð, innflutningsverzlun og verðlagseftirlit. Þessari fyrirspurn var mjög vel tekið af forsvarsmanni hv. fjhn. Það hefur komið fram ágreiningur í n., hún hefur ekki orðið sammála um afgreiðslu málsins, minni hl. n. hefur gefið út nál. á þskj. 177, dagsett Þann 10. þ. m., en í dag er 15. des. Nú vil ég spyrjast fyrir um það, hvað liði áliti meiri hl. n., og enn fremur bera fram ósk um, að það mætti koma sem fyrst, svo að hægt sé að taka málið til umr. í d.