05.03.1948
Neðri deild: 69. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 50 í C-deild Alþingistíðinda. (2130)

20. mál, fjárhagsráð, innflutningsverslun og verðlagseftirlit

Ásgeir Ásgeirsson:

Ég verð eindregið að mælast til þess, að atkvgr. verði frestað til næsta fundar. Ég sé, að enginn er viðstaddur af hæstv. ráðh., og eftir þeim upplýsingum, sem ég fæ, eru ekki líkur til, að þeir geti mætt á þessum fundi d., og það eitt út af fyrir sig er, hygg ég, ærin ástæða til, að málinu sé nú frestað.