09.03.1948
Neðri deild: 71. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 51 í C-deild Alþingistíðinda. (2139)

20. mál, fjárhagsráð, innflutningsverslun og verðlagseftirlit

Forseti (BG) :

Það mun rétt vera, sem hv. 6. þm. Reykv. sagði í ræðu sinni, að 20. mál hefði tvisvar verið tekið af dagskrá á fundum undanfarið. Ég hef ekki stjórnað þeim fundum, en þó mun það hafa verið ósk frá frsm. minni hl. fjhn., að atkvgr. færi ekki fram meðan hann væri fjarverandi. en hann hafði fjarvistarleyfi til þess að hverfa heim til sín um helgina. En hvað sem því líður, sé ég mér ekki fært að taka þetta deilumál til atkvgr. öðruvísi en áður sé tilkynnt á prentaðri dagskrá, að málið komi til atkvgr. Verður það tekið á dagskrá á næsta fundi d. og atkvgr. þá látin fara fram.