09.03.1948
Neðri deild: 71. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 52 í C-deild Alþingistíðinda. (2143)

20. mál, fjárhagsráð, innflutningsverslun og verðlagseftirlit

Forseti (BG) :

Ég vil neita því, að ég hafi átt hlutdeild í að tefja þetta mál. Ég mun reyna að sjá svo til, að fundur verði haldinn í Nd. á morgun, en get ekki ákveðið tímann núna. Vona ég, að hv. viðkomandi þm. geti sætt sig við þetta. Hitt kann ég betur við, að alls forms sé gætt í sambandi við atkvgr. málsins og fundarboðun.