07.10.1947
Neðri deild: 4. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 107 í C-deild Alþingistíðinda. (2249)

50. mál, fjárlög 1948

Forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Það hefur oft verið svo og er ekkert nýtt, að allra fyrstu daga þingsins hafi ekki verið lagt fram fjárlfrv. Ég hygg, að það hafi verið svo, að fjöldamörgum sinnum hafi liðið nokkrir dagar af þingi, áður en það hefur verið lagt fram. Hins vegar mun frv. koma bráðlega, og geri ég ráð fyrir. að það komi ekki seinna á þessu þingi en oft hefur verið áður.