23.03.1948
Efri deild: 87. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 166 í C-deild Alþingistíðinda. (2311)
76. mál, ríkisborgararéttur
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson) :
Herra forseti. Mér þykir leitt, að ég gat ekki verið við, er umr. hófust um þetta mál, en mér skilst, að hv. þm. hafi óskað þess að ég léti skoðun mína og álit í ljós á þessu máli, í þessu sambandi vil ég upplýsa, að hv. n. hefur haft samstarf við mig í þessu máli en umsóknir hafa borizt dómsmrn. fram á daginn í dag um veiting ríkisborgararéttar. Hins vegar er nokkurt vafamál, hvaða sjónarmið skuli ráða í veitingu ríkisborgararéttar. N. vildi, að hún fengi víðtækt vald í þessum efnum, og ég set mig ekki á móti brtt. n. Mér finnst nú ekki, að frv. liggi neitt sérstaklega á. Afgreiðsla þess má gjarnan bíða til haustsins, en ég leggst ekki á móti brtt.