04.11.1947
Neðri deild: 13. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 188 í C-deild Alþingistíðinda. (2346)

59. mál, ölgerð og sölumeðferð öls

Forseti (BG) :

Einn af hv. þdm. hefur óskað eftir því, að mál þetta yrði ekki tekið fyrir í dag, en sá hv. þm. ætlaði að tala í þessu máli. Og þar sem ég sé ekki að það hafi áhrif á afgreiðslu málsins, þó að því sé frestað um einn dag að taka það fyrir, taldi ég rétt að verða við þessari ósk.