13.11.1947
Neðri deild: 17. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 215 í C-deild Alþingistíðinda. (2358)

59. mál, ölgerð og sölumeðferð öls

Sigfús Sigurhjartarson:

Ég hef farið fram á það við hæstv. forseta, að hann héldi ekki lengi fram umr. í dag, því að það er þingflokksfundur í mínum flokki. Vildi ég heyra, hvort hann ætlar að neita þessari beiðni um, að mér og öðrum flokksmönnum gefist kostur á að halda flokksfund á venjulegum tíma.