18.03.1948
Neðri deild: 75. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 368 í C-deild Alþingistíðinda. (2516)

93. mál, útrýming villiminka

Jörundur Brynjólfsson:

Ég kann illa því kappi, sem fram hefur komið hjá hæstv. ráðh. og frsm. landbn. varðandi þessa atkvgr., sem þó er í alla staði lögleg. Ég get ekki farið að lesa brtt., en hver sem vill hafa fyrir því að lesa till., en þær eru á þskj. 523 og 447, getur séð, að efni þeirra stenzt á, og mér skilst, að háttur sá, sem hér var hafður á, sé í alla staði eðlilegur og engan veginn óalgengur.

Brtt. 458 kom ekki til atkv.

Frv., svo breytt, samþ. með 16:5 atkv. og afgr. til Ed.