28.11.1947
Sameinað þing: 27. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 369 í C-deild Alþingistíðinda. (2526)

94. mál, dýrtíðarráðstafanir

Bernharð Stefánsson:

Ég tek fram, að það er nú ekki síður í hv. Ed. að þæfa mál, og þess vegna stendur svo á nú, að mál, sem þar hafa verið lögð fram, eru komin til hv. Nd. Og þar sem ekki liggja fyrir til afgreiðslu hjá hv. Ed. mál, sem komin séu frá hv. Nd., þá liggur þannig ekkert fundarefni fyrir í hv. Ed., og þess vegna er ekki boðað til fundar þar í dag.