15.12.1947
Neðri deild: 32. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 447 í C-deild Alþingistíðinda. (2587)

109. mál, stríðsgróðaskattur

Forseti (BG) :

Þessar umr. ætla að fara að verða þreytandi. Það er makalaust. að hv. þm. N-Ísf. skuli ekki átta sig á því, hvernig í þessu máli liggur. Við töluðum báðir við hæstv. fjmrh., og hann dró ekki dul á það, að þessi skilaboð hefðu verið send forseta, en það var af vangá hjá honum að biðja ekki um, að 11. málið væri tekið af dagskrá. Og mér þykir hv. þm. N-Ísf. vera farið að förlast mjög minni, að hann skuli ekki muna samtal okkar þriggja hér við stigauppgönguna. (SB: Ég vitnaði í það). Ég mun ekki ræða frekar um þetta mál.