18.03.1948
Neðri deild: 76. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 479 í C-deild Alþingistíðinda. (2660)

180. mál, Sinfóníuhljómsveit Íslands

Forseti (BG) :

Þar sem mér virðast gildari rök hníga að því, að málið sé nú tekið til umr., heldur en að því sé frestað sökum lasleika hv. flm. brtt. á þskj. 511, hv. þm. Ísaf., þá sé ég mér ekki fært að verða við þeirri ósk að taka málið af dagskrá.