18.03.1948
Neðri deild: 76. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 483 í C-deild Alþingistíðinda. (2665)

180. mál, Sinfóníuhljómsveit Íslands

Frsm. (Sigfús Sigurhjartarson):

Ég álít, að forseti eigi að úrskurða þessa till. frá, vegna þess að hér er um allt annað efni að ræða, og ef slíkt frv. lægi fyrir, bæri að senda það til fjhn. Hér er um að ræða fjáröflunartill., en ekki till. um symfóníuhljómsveit Íslands, og ber því að vísa henni til fjhn., en ekki til menntmn. Ég vænti forsetaúrskurðar.